Já virkilega, þetta er að eiga sér stað.
Í dag er ég glöð í sinni vegna þess að ég er komin með vinnuaðstöðu í Samsteypunni sem er í húsakynnumSementsverksmiðjunnar hér á Akranesi.
Við vorum í flutningum allan daginn í gær og litirnir mínir, áhöldin , nýstrekktu strigarnir og trönurnar eru komin í mitt horn.
Ég hef hugsað mér að fara í dag og koma þessu betur fyrir og snurfusa aðeins.
Svo er markaður hér í bæ sem hefst um hádegi og þangað þykist ég eiga erindi líka.
En ég vildi bara láta ykkur vita um vinnuaðstöðuna mína og svoleiðis.
Velkomin í heimsókn.